- Auglýsing -
Nóttin var með rólegra móti hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, en 45 mál komu inn á borð hennar frá því kl. 17 í gærdag
Fimm ökumenn voru stöðvaðir fyrir að aka undir áhrifum áfengis eða fíkniefna og brotist var inn í eina bifreið. Tveir aðilar eru grunaðir um vörslu fíkniefna.
Tilkynnt var um eld í trjám og ruslagámi sem reyndist vera minniháttar. Þá var lögreglu einnig tilkynnt um grunsamlegar mannaferðir.