- Auglýsing -
Steinunn Ólína er komin á fast með rithöfundinum Bergsveini Birgissyni.
Leikkonan og fjölmiðlakonan Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir er komin á fast með Bergsveini Birgissyni rithöfundi. Þessu er greint frá á DV.
Á Vísi segir að um fjarsamband sé að ræða og því má gera ráð fyrir að sambúð Steinunnar og tónlistarkonunnar Möggu Stínu haldið áfram. Sambúð þeirra hefur vakið mikla athygli og skrifaði Steinunn til að mynda pistil um málið sem fór sem eldur um sinu.
Steinunn Ólína var gift leikaranum Stefáni Karli Stefánssyni sem lést í fyrra eftir baráttu við krabbamein.