Samkvæmt skráningu á vef Fjölmiðlanefndar er Torg ehf. í eigu 365 miðla hf. og HFB-77 ehf. Félögin eiga helming hvort um sig.
Félög í eigu Ingibjargar Pálmadóttur eiga 99% í 365 miðlum en HFB-77 er dótturfélag Varðbergs ehf., sem er alfarið í eigu Helga Magnússonar. Tilkynnt var um kaup Helga á 50% hlut í Torgi í júní sl. og tók hann þá sæti í stjórn. Helgi hefur fjárfest í ýmsum fyrirtækjum og er stjórnarformaður Bláa lónsins. Ingibjörg er stjórnarformaður Torgs og Jóhanna Helga Viðarsdóttir framkvæmdastjóri.
Ritstjórar Fréttablaðsins eru Davíð Stefánsson sem var ráðinn inn í maí sl., og Ólöf Skaftadóttir. Blaðið er gefið út sex sinnum í viku og dreift í 80 þúsund eintökum. Torg rekur einnig tímaritið Glamour og vefina frettabladid.is, markadurinn.is og glamour.is. Lestur á blaðinu hefur dalað nokkuð síðustu ár en samkvæmt Gallup stóð hann í 52% í janúar 2015 en mælist nú 37,9%. Þá hefur blaðið misst enn fleiri lesendur í aldurshópnum 18-49 ára. Í janúar 2015 lásu 48,8% einstaklinga undir fimmtugu blaðið en 28% lesa það í dag.
Sjá einnig: Gera tugmilljóna kröfu á Torg