Í hverri viku tiltekur Mannlíf þá aðila sem átt hafa góða viku og slæma viku. Að þessu sinni eru það krakkarnir í Stundinni okkar og GAMMA sem komust á blað.
Góð vika – Krakkarnir í Stundinni okkar
Nú er svo komið að fullorðnum hefur verið bolað burt úr Stundinni okkar en við stjórnvölinn í vetur verða þau Erlen Ísabella Einarsdóttir og Lúkas Johansen. Margir aðrir krakkar munu koma fram í þættinum, sem verður samsettur úr fjölbreyttum smáseríum.
Á dagskránni verða m.a. Verkstæðið, þar sem krakkar búa til eitthvað nýtt úr gömlum hlutum, og Málið, sem er lýst sem nokkurs konar krakkaútgáfu af Kappsmáli. Fyrsti þáttur Stundarinnar okkar fer í loftið á sunnudag og Mannlíf segir: Til hamingju, krakkar!
Slæm vika – GAMMA(r)
Stjórnendur fjármálafyrirtækisins Gamma, núverandi og fyrrverandi, hafa ekki átt sjö dagana sæla en í vikunni var gengi tveggja fagfjárfestasjóða sem félagið rekur fært niður svo um munar.
Eftir endurmat á stöðu sjóðanna var eigið fé GAMMA: Novus sem var metið 4,4 milljarðar um áramótin, metið á 42 milljónir króna. Hlutdeildarskírteinishafar hafa sett milljarða í sjóðinn og þá lánaði hópur fjárfesta GAMMA: Novus 2,7 milljarða í skuldabréfaútboði í júní sl.
Menn krefjast nú eðlilega svara; hvað í ósköpunum gerðist, en stóru tryggingafélögin þrjú eru meðal þeirra sem hafa tapað hundruðum milljóna á klúðrinu.