- Auglýsing -
Salka Sól deildi fallegum bumbumyndum á samfélagsmiðlum í gær.
Söngkonan Salka Sól Eyfeld, sem á von á sínu fyrsta barni með eiginmanni sínum, Arnari Frey Frostasyni, skellti sér í bumbumyndatöku á dögunum.
Salka deildi ljósmyndunum á samfélagsmiðlum í gær.
„Þegar besta vinkona þín er ljósmyndari fær maður geggjaðar óléttu myndir,“ skrifaði hún á Instagram. Eygló Gísladóttir tók myndirnar sem um ræðir.
Ástrós Erla Benediktsdóttir sá um förðunina og Sigrún Ásta Jörgensen sá um stíliseríngu.
- Auglýsing -
Sjá einnig: „Hélt ég myndi aldrei segja: Ég er ólétt“