Í gær afhenti hjólahópurinn Team Rynkeby Ísland Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna 23.611.699 krónur með viðhöfn í Smáralind. Hjólahópurinn ásamt velunnurum var viðstaddur.
Það eru Guðbjörg Þórðardóttir og Viðar Einarsson sem byrjuðu með Team Rynkeby á Íslandi árið 2017, en um er ræða verkefni þar sem hjólreiðafólk hjólar frá Kolding á Jótlandi til París í Frakklandi.
Í ár var Ísland í þriðja skipti með þátttökulið. Árið 2017 safnaði liðið rúmlega 9.4 milljónum krónum og rúmlega 16,6 milljónum krónum árið 2018.
Þann 29. júní lögðu 36 hjólarar ásamt átta manna aðstoðarliði af stað frá Kolding á Jótlandi og setti stefnuna á París. Leiðin lá frá Danmörku til Þýskalands, inn og út úr Hollandi (sama daginn) inn í Belgíu og síðan yfir landamærin til Frakklands. Eftir viku hjólreiðar var komið til Parísar ásamt 54 öðrum liðum frá Norðurlöndunum auk liðs frá Þýskalandi. Lengsta dagleiðin var um 206 km. Alls voru hjólaðir rúmlega 1280 km.
Brynja Kristinsdóttir ljósmyndari og þátttakandi í hópnum sumarið 2019 festi stemninguna á filmu.
Team Rynkeby Ísland 2019 þakkar kærlega fyrir veittan stuðning. Ykkar stuðningur er mikilvægur í baráttu krabbameinssjúkra barna til betra lífs.
Hópurinn fyrir sumarið 2020 hefur þegar verið valinn og má fylgjast með Team Rynkeby Ísland á Facebook-síðu og heimasíðu verkefnisins.