- Auglýsing -
Fyrrverandi forseti Frakklands, Jacques Chirac, er látinn 86 ára að aldri. Þessu er sagt frá á vef BBC.
Chirac var fyrst kosinn forseti árið 1995 og aftur sjö árum síðar. Seinna kjörtímabil hans rann út árið 2007.
Áður hafði Chirac verið borgarstjóri Parísar, frá árinu 1977 til ársins 1995. Chirac var dæmdur í tveggja ára skilorðsbundið fangelsi árið 2011 fyrir spillingu í starfi þegar hann var borgarstjóri.