Nóttin sem er að baki einkenndist af brotlegum ökumönnum sem ýmist voru drukknir eða dópaðir á ferðinni í myrkrinu. Fjórar manneskjur gistu fangageymslur á höfuðborgarsvæðinu í nótt.
Lögregla var kölluð til vegna líkamsárásar en þar höfðu tveir aðilar verið að slást. Báðir eru slagsmálahundarnir grunaðir um að hafa veitt hinum áverka. Skýrsla tekin af þeim og rituð vegna málsins.
Ökumaður var stöðvaður í akstri þar sem lögregla ætlaði að kanna með ástand og réttindi hans. Í ljós kom að hann var undir áhrifum fíkniefna. Þá er hann grunaður um sölu- og dreifingu fíkniefna auk umferðarlagabrota. Maðurinn var óviðræðuhæfur vegna ástands síns. Hann var læstur inni í fangageymslu þangað til að hægt verður að ræða við hann vegna málsins.
Ökumaður var stöðvaður í austurborginni á hraða sem nam 107 kílometrum á klukkustund þar hámarkshraði er 50 kílómetra. Ökufanturinn reyndist hafa verið sviptur ökuréttindum.
Ökumaður var stöðvaður grunaður um ölvunarakstur og akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Lögregla hafði þá leitað hans vegna annars máls og var hann fangelsaður í þágu rannsókna þess máls.