Fyrr í dag var skotið við golfvöll Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, og var Trump staddur á svæðinu að spila golf. Talsmenn Trump segja að hann sé óhultur en þeir hafa ekki gefið fleiri upplýsingar en það. Samkvæmt fyrstu fréttum var sagt að um hafi verið að ræða átök milli tveggja manna og þau hafi ekki tengst Trump að neinu leyti en það hefur ekki verið staðfest. Leyniþjónustumaður er sagður hafa séð mann með byssu og skotið ítrekað í hans átt. Einn hefur verið handtekinn í kjölfar þessa máls en ekki liggur fyrir hvort hann hafi verið inn á golfvellinum eða ekki. Hafi maðurinn ætlað að skjóta Trump er þetta í annað skipti á tveimur mánuðum sem slíkt hefur verið gert en þann 13. júlí var forsetinn fyrrverandi skotinn þegar hann hélt ræðu fyrir fylgismenn sína.