Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra bjargaði lífi ríkisstjórnarinnar með því að fara að kröfu Guðmundar Inga Guðbrandssonar, formanns Vinstri-grænna, og hætta við að senda langveikan og illa haldinn Yazan Tamimi úr landi.
Meðferðin á drengnum var með þeim hætti að mörgum ofbauð. Hann var vakinn upp í rúmi sínu í Rjóðrinu og fluttur í Leifsstöð þar sem honum var haldið klukkustundum saman við slæmar aðstæður áður en Guðrún dómsmálaráðherra ákvað að fresta flutningi hans til Spánar. var frestað í gær. Hermt er að hún hafi tekið þessa ákvörðun í skugga þess að Guðmundur Ingi hafi hótað stjórnarslitum.
Sjálf viðurkenndi Guðrún í umræðuþætti á RÚV í gær að þessi stjórnsýsla hennar að ganga gegn ákvörðun Útlendingastofnunar og kærunefndar útlendingamál stæðist illa skoðun og megi flokka sem geðþóttaákvörðun
„Ég hef í raun ekki lagalega heimild til þess að stíga inn í svona mál,“ sagði Guðrún sem sló tvær flugur í einu höggi og bjargaði litlum dreng úr hörmulegum aðstæðum og varð jafnframt lífgjafi alræmdrar ríkisstjórnar sem á sér varla lífsvon. Málinu er þó ekki lokið því brottrekstri veika drengsins frá Íslandi var aðeins frestað …