Uppnámið innanborgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins vegna Borgarlínunnar hefur vakið mikla athygli. Flokkurinn er þríklofinn í málinu og hver höndin upp á móti annarri. Þetta kom í ljós þegar greidd voru atkvæði um uppfæröa Borgarlínu. Þetta er ekki síst skondið í því ljósi að Bjarni Benediktsson, formaður flokksins, og allir helstu áhrifamenn flokksins í nágrannasveitafélögum Reykjavíkur styðja áform um Borgarlínu.
Leiðtogi borgarstjórnarflokksins, Hildur Björnsdóttir, var fjarri góðu gamni á ferðalagi erlendis með móður sinni. Fæstum dylst að Hildur hefur misst tökin og hún nær ekki að láta sitt fólk halda takti. Afleðiningin er sú að fylgi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík mælist vera fyrir neðan allar hellur.
Leitin að nýjum leiðtoga flokksins í Reykjavík er hafin. Einhverjir staldra við nafn Kjartans Magnússonar borgarfulltrúa sem hefur verið áberandi og virkur í stjórnarandstöðu. Aðrir vilja sjá Friðjón Friðjónsson borgarfulltrúa við stjórnvölinn en hann þykir vera einhver mesti klækjarefur samtímans í stjórnmálum. Svo eru það þeir sem vilja fá nýtt blóð í borgina í þeirri von að takist að koma flokknum upp úr hyldýpi fylgishrunsins …