- Auglýsing -
Maðurinn sem fannst látinn á Reynisfjalli í gær er Illes Benedek Incze en hans var leitað frá því á mánudag.
Lögreglan á Suðurlandi var að staðfesta rétt í þessu að maðurinn sem fannst látinn á Reynisfjalli í gær er Ungverjinn Illes Benedek Incze sem búsettur var í Vík í Mýrdal. Mikil leit stóð yfir frá því Incze var saknað á mánudaginn.
Samkvæmt tilkynningu lögreglunnar á Suðurlandi, sem fer með rannsókn á andlátinu, er ekki talið að það hafi verið með saknæmum hætti.