Halla Hrund Logadóttir, fyrrverandi orkumálstjóri, er þessa dagana að hugsa sinn gang og horfir til himins og veltir fyrir sér pólitík. Hermt er að hún ætli að skella sér í stjórnmálin eftir þá lífsreynslu að hafa reynt við forsetaembættið. Halla hafði ekki árangur sem erfiði þótt um tíma virtist sem svo að hún væri í miklum meðbyr á leið til Bessastaða.
Nú keppast flokkar á miðjunni um að fá hana í framboð. Framsóknarflokkurinn er sagður einstaklega opinn fyrir kröftum hennar. Þá er hermt að Samfylking vili fá hana í sínar raðir. Heimildir herma að líklegast sé að Halla Hrund taki höndum saman við Kristrúnu Frostadóttur og fari fram fyrir Samfylkinguna. Víst er að það munar um liðsinni hennar …