Laugardagur 28. september, 2024
4.9 C
Reykjavik

Hæstaréttarlögmaður vill láta rannsaka starfshætti lögreglunnar á Norðurlandi eystra

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Jakob R. Möller hæstaréttarlögmaður segir símastuldar- og byrlunarmál skipstjórans Páls Steingrímssonar vera stórfurðulegt og að rannsaka þurfi starfshætti lögerglunnar á Norðurlandi eystra.

Í samtali við Morgunblaðið segir Jakob R. Möller hæstaréttarlögmaður að lögreglan á Norðurlandi eystra hafi áttað sig á því alltof seint „að hún væri í tómri vit­leysu með rann­sókn­ina“ í máli Páls Steingrímssonar.

Segir hann að útskýringar lögreglunanr á Norðurlandi eystra um að ástæða þess að málið hafi verið látið niður falla sé sú að ekki hafi verið hægt að sanna hver afritaði gögnin úr síma Páls, séu furðulegar og skipti engu máli.

„Það er vitað hverj­ir höfðu aðgang að upp­lýs­ing­un­um úr sím­an­um, en það skipt­ir engu máli hver það var sem af­ritaði gögn úr sím­an­um,“ seg­ir Jakob í samtali við Morgunblaðið og bætir við að rannsókn á öðrum þáttum málsins en þeim sem snúa að því hver tók símann af Páli þar sem hann lá meðvitundarlaus á sjúkrahúsi, skipti engu máli.

Þegar Jakob er spurður hvort eðlilegt hafi verið að lögreglan hafi látið það gott heita er fyrrverandi eiginkona Páls hafnaði beiðni um að gangast undir sakhæfismat, svarar hann því til að það sé enn eitt dæmið um að rannsóknin hafi frá byrjun verið slík hrákasmíð, að eðlilegast væri nú að láta rannsaka starfshætti lögreglunna á Norðurlandi eystra, greinilegt sé að hún hafi ekki vitað hvað hún var að gera.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -