Vegagerðin hefur gefið út hálkuviðvaranir á vegum víðsvegar á landinu.
Samkvæmt Vegagerðinni má búast við hálku á fjallvegum víða um land og þá sérstaklega á morgnana og biður vegfarendur að kanna aðstæður áður en lagt er af stað.
Á Austurlandi eru víða hálkublettir á fjallvegum og má búast við að hálkan aukist þar sem spáð er snjókomu í nótt og frosti víðast hvar, að því er fram kemur í frétt Austurfréttar.
Hálka og hálkublettir eru nú þegar á Vopnafjarðarheiði, Fjarðarheiði, Breiðdalsheiði, Vatnsskarði og Fagradal en þar að auki er fjallvegurinn um Hellisheiði eystri er orðinn þungfær. Þá er einnig hálka á veginum inn í Mjóafjörð en hægt er að sjá stöðuna inni á vef Vegagerðarinnar.
Hálkublettir eru einnig á Steingrímsfjarðarheiði á Vestfjarðakjálkanum sem og á Öxnadalsheiði Norðanlands sem og á Mývatnsöræfum.
Víða eftir miðnætti gerir Veðurstofa Íslands ráð fyrir því að frysti og fari jafnvel niður í tveggja stiga frost í byggð á stöku stað í nótt. Það þýðir að búast megi við frekari hálku í fyrramálið.