Allir stjórnarflokkarnir glíma við fylgishrun eftir stjórnarsamstarf sem sumum þykir subbulegt en aðrir telja vera til háborinnar fyrirmyndar. Verst er staða Vinstri grænna sem eru í útrýmingarhættu eftir að hafa svínað á flestum sínum stefnumálum til að tryggja gott samstarf við Sjálfstæðisflokkinn sem nú er að umbreytast í smáflokk.
Staða Framsóknarflokksins undir stjórn Sigurðar Inga Jóhannssonar er afar snúin. Fylgishrun liggur í loftinu þótt ekki sé um að ræða útlit fyrir útrýmingu. Sigurður Ingi hefur verið staðinn að beinum svikum vegna hlutdeildarlána sem eru í frosti þótt ráðherrann hafi vikum saman sagt að þau séu að koma. Hundruð íbúðakaupenda eru í miklum vanda og geta ekki staðið við kauppsamninga.
Þá er Einar Þorsteinsson borgarstjóri í vanda vegna loforða sinna um að þúsundir íbúða yrðu byggðar í Reykjavík. Engar efndir eru þar um og framsóknarmenn eru á harðahlaupum yfir í Miðflokkinn …