Mánudagur 30. september, 2024
2.6 C
Reykjavik

Próflaus og dópaður með fölsk númer – Ók drukkinn gegn rauðu ljósi með of marga farþega

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Ökumaður í austurborginni  var staðinn að því að aka á móti einstefnu og gegn rauðu ljósi og stofna þannih til stórhættu. Þegar lögreglan stöðvaði akstur mannsins kom í ljós að farþegar voru of margir og ökumaðurinn það auki drukkinn. Ökumanninum verður refsað í samræmi við brotið.

Tilkynnt um aðila í anddyri hótels í miðborginni sem neitaði að yfirgefa staðinn. Sá þveri neitaði að fara. Hann yfirgaf þó hótelið í rólegheitum með lögreglu.

Farþegi leigubifreiðar neitaði að greiða fargjaldið. Hann lét sig hverfa út í nóttina áður en lögreglu bar að. Skýrsla var rituð á málið og leigubifreiðastjóra leiðbeint með kæruferli.

Brotist var inn á tvo veitingastaði í miðborginni. Þá var  innbrot í heimahús Hafnarfirði. Húsráðandi sem var að koma úr fríi erlendis átti ömurlega heimkomu. Brotist hafði verið inn á heimili hans. Málið er í rannsókn.

Þjófur sást vera að stela dósum úr söfnunargámi. Dósaþjófurinn fannst ekki þrátt fyrir leit.

Réttindalaus ökumaður í Kópavogi reyndi sitt að blekkja lögreglu. Hann hafði útbúið fölsk skráningarmerki á bifreið sína með því að skrifa nýtt númer á pappaspjöld og vefja með plasti og festa yfir réttu skráningarnúmerin. Fölsunin var augljós og var lögreglan snögg að fletta ofan af skúrkinum. Þá kom í ljós að ökumaðurinn hafði verið sviptur ökuréttindum og er grunaður um akstur undir áhrifum vímugjafa.

- Auglýsing -

Vitni sá krakka vera að reykja kannabis á leikskólalóð í Hafnarfirði. Börnin fundust ekki þrátt fyrir leit lögreglu.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -