Mánudagur 30. september, 2024
4.7 C
Reykjavik

Ung kona lést í slysinu á Sæbraut

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu er greint frá því að manneskjan sem lést í slysinu á Sæbraut aðfaranótt sunnudags hafi verið kona á fertugsaldri.

Ekki er hægt að gefa upp nafn hennar að svo stödd.

Í slysinu var fólksbifreið ekið norður Sæbraut, á milli Súðarvogs og Kleppsmýrarvegar, og á gangandi vegfaranda sem var á leið yfir götuna til  austurs. Lokað var fyrir umferð um vettvanginn á meðan unnið var að rannsókn málsins, líkt og venjan er þegar svo alvarlegt slys hefur átt sér stað, og mætti það litlum skilningi annarra vegfaranda, að sögn lögreglunnar. Fram kemur í tilkynningu lögreglu að lögreglumenn séu ýmsu vanir í þeim efnum, en „framkoma sumra í nótt væri dapurleg“ svo ekki sé meira sagt „og er fólk beðið um að taka þetta til sérstakrar umhugsunar.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -