Varaþingmaður Pírata, Halldór Auðar Svansson hefur lokið störfum sem formaður framkvæmdarstjórnar Pírata en aðeins er tæpur mánuður síðan kosið var í embættið á aðalfundi flokksins.
Í tilkynningu frá framkvæmdarstjórn flokksins kemur fram að Þórhildur Elínardóttir Magnúsdóttir hafi nú tekið við formennsku. Samkvæmt heimildum RÚV ætlar Halldór hins vegar að sitja áfram í framkvæmdarstjórninni.
Þann 7. september var ný framkvæmdarstjórn kjörin á aðalfundi Pírata sem haldinn var í Hörpu. Nokkurs titrings gætti hjá Pírötum í aðdraganda kjörsins sem varð til þess að lokum að þáverandi samskiptastjóri þingflokks Pírata, Atli Þór Fanndal ákvað að segja stöðu sinni upp. Á aðalfundinum var Halldór Auðar kjörinn formaður í stað Atla Stefáns Yngvasonar. Þá var samþykkt á fundinum að bæta tveimur stjórnarmönnum við þá þrjá sem fyrir voru.