Félagið Ísland-Palestína stendur fyrir samstöðugöngu með Palestínu og Líbanon næstkomandi laugardag, í tilefni af því að ár er liðið frá því að Ísrael hóf gegndarlausar árásir á palestínsku þjóðina í kjölfar hryðjuverkaárásar Hamas liða í Ísrael.
„Laugardaginn 5. Október göngum við í samstöðu með palestínsku og líbönsku þjóðunum gegn grimmdarverkum Ísraels.“ Þannig hefst fréttatilkynning frá félaginu Ísland – Palestína en mæting er við bandaríska sendiráðið klukkan 14:00 en klukkan 14:15 verður gegnið að Austurvelli.
Tilkynningin heldur áfram:
„Í heilt ár hefur Ísrael stundað þjóðarmorð í Palestínu og baráttan okkar fyrir réttlæti heldur áfram! Nú hefur Ísrael einnig ráðist inn í Líbanon og haldið upp linnulausum loftárásum. Þúsundir drepnir og milljón á flótta. Handritið er það sama, logið er um að sjúkrahús, skólar og aðrir innviðir Líbanons séu bækistöðvar andspyrnuhreyfinga og að þessi lygar notaðar til að réttlæta stjórnlausa eyðileggingu Ísraels á innviðum Líbanons Aðgerðir Bandaríkjanna sýna að þau styðja fullkomlega þjóðarmorð Ísraels á Gaza og innrás þess inn í Líbanon, þrátt fyrir falleg orð um annað.“
Að lokum krefst félagið réttlætis og frelsis fyrir löndin tvö:
„Við krefjumst réttlætis og frelsis fyrir Palestínu og Líbanons.
Sýnum samstöðu og stuðning og stöðvum þjóðarmorð
Sjáumst í baráttunni!
Félagið Ísland – Palestína“