Fimmtudagur 3. október, 2024
7.8 C
Reykjavik

Bílstjóri undir áhrifum ók á lögreglubíl og slasaði fólk – Óviðræðuhæfir þjófar settir í fangalefa

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Bílstjóri í annarlegu ástandi varð valdur að umferðarslysi í Kópavogi þegar hann ók utan í lögreglubifreið sem var honum samsíða. Slys urðu á fólki og var önnur bifreiðin óökufær eftir áreksturinn. Ökumaður einkabifreiðarinnar er grunaður um akstur undir áhrifum áfengis eða annarra vímugjafa. Hann verður saksóttur.

Sjö manns gistu fangageymslur lögreglunnar í nótt. Eldur braust út í bifreið í Breiðholti í nótt. Engin slys urðu á fólki.

Tilkynnt var um grunsamlegar  mannaferðir í hverfi 220 í Hafnarfirði. Greinagóð lýsing var gefin á þeim grunsamlega sem hvarf sporlaust inn í nóttina.

Árekstur varð í Kópavogi. Annar ökumaðurinn stakk af frá vettvangi. Málið er í ferli.

Bifreið var ekið á ljósataur í austurborginni. Minniháttar slys á fólki en bifreiðin varð óökufær.

16 ára ökumaður stöðvaður við akstur bifreiðar í Breiðholti. Hann með fullan bíl af farþegum á svipuðum aldri. Krakkaskarinn var fluttur á lögreglustöð og foreldrar kallaðir til. Barnavernd var tilkynnt um málið.

- Auglýsing -

Tveir þjófar voru handteknir grunaðir um skemmdarverk og tilraun til innbrots í austurborginni. Þjófarnir reyndust verqa óviðræðuhæfir og voru læstir inni í fangaklefa uns hægt verður að ræða við þá.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -