Illugi Jökulsson skýtur fast á Bjarna Benediktsson í nýrri Facebook-færslu um stríðsglæpi Ísraelsmanna.
Fjölmiðlamaðurinn Illugi Jökulsson skrifaði stutta en firnarsterka Facebook-færslu í morgun þar sem hann segir frá nýjustu morðum Ísraelshers í Líbanon og á Gaza en í gær voru 12 börn drepin í Khan Younis á Gaza. Skýtur hann svo fast á Bjarna Benediktsson forsætisráðherra sem í byrjun nóvember í fyrra vildi ekki kannast við að Ísraelsher hefði gert árás á flóttamannabúðirnar í Jabalia, er norskur blaðamaður spurði hann út í árásina en tugir létust í henni.
Hér má sjá færslu Illuga:
„Stríðsglæpir Ísraels halda áfram. Sex voru drepin í eldflaugaárás á heilsugæslustöð í miðborg Beirut. Það er skýr stríðsglæpur. Og bara í Khan Younis á Gasa í gær voru drepin tólf börn, hið yngsta skorti tvo mánuði í að verða tveggja ára. Sagðirðu árás?“