Búið er að tilkynna um þá leikmenn sem taka þátt í vináttulandsleikjum íslenska kvennalandsliðsins gegn því bandaríska en leikirnir tveir fara fram í Bandaríkjunum 24. október og 27. október. Bandaríska liðið er sem stendur í dag besta kvennalandsliðið í heimi samkvæmt lista FIFA.
Fimm í hópnum spila á Íslandi en athygli vekur aðeins ein þeirra spilar með nýkrýndum Íslandsmeisturum Breiðabliks. Þá spila þrjár fyrir Val og ein fyrir Þór/KA. Er þetta nánast sami hópur og var valin fyrir leiki landsliðsins sem fóru fram í júlí en Sædís Rún Hreiðarsdóttir kemur inn í liðið í stað Kristínar Árnadóttur.
Hægt er að sjá hópinn hér fyrir neðan