Í nýjum pistli sem Davíð Már Sigurðsson, íþróttakennari og leikari, skrifar greinir hann frá því að hann telji sundkennslu vera orðna að bitbeini í pólitík og það hafi verið mistök að draga úr sundkennslu barna á Íslandi.
„Sundkennsla barna er eitthvað sem hefur verið bitbein í pólitísku umhverfi samtímans og oftar en ekki notuð til að skora einhver rokkstig á gamla Twitter. Nú eða næla sér í auðveld atkvæði rétt fyrir kosningar, eins og gerðist til að mynda síðast 2022.
Umræðan byggist þá oft á reynslu foreldra sem upplifðu sundkennslu óbreytta í öll þau tíu ár sem þau gengu í skóla. Ég þekki það sjálfur að sund snerist að mörgu leyti um að synda fram og til baka þangað til kennslustundinni lauk. Kannski kíkja í pottinn síðustu mínúturnar ef maður náði að klára allt sem sett var fyrir. Og til að bæta gráu ofan á svart, að vera með kennara sem var hörkutól af gamla skólanum, sem hélt að það væri algjör snilld að öskra mann áfram. Auðvitað er líklegt að þú, sem foreldri, hafir neikvæða ímynd af sundkennslu ef þetta var raunin,“ skrifar Davíð um málið á Vísi. Davíð segir stöðuna vera allt aðra í dag og sundkennarar í dag hafi breytt nálgun sinni.
Snýst ekki aðeins um að kenna færni
„Nú á dögum er leikjafræði, leikfimi í vatni, björgun og jákvæð upplifun af hreyfingu í fyrirrúmi. Sundkennsla, og leikfimi/skólaíþróttir ef út í það er farið, byggja á því að skila nemendum út í lífið sem heilsteyptari einstaklingum heldur en þegar þau hófu nám. Sem einstaklingum sem kunna að takast á við verkefni og leysa vandamál sem verða á vegi þeirra. Einn samstarfsfélagi benti mér á að starfið snúist ekki bara um að kenna færni, heldur á nemandi að geta nýtt sér sundlaugarnar þurfi hann á því að halda, til dæmis við endurhæfingu eftir slys. Eða, hvort er hann líklegri til að nýta sér sundlaugina ef hann hafði neikvæða eða jákvæða upplifun í skólanum? Svarið liggur í augum uppi.
Og bara svo það sé á hreinu, þá er enginn sundkennari nú til dags að láta nemendur standa eða falla með framkvæmd á flugsundi. Það má þó alveg reka það ofan í mig og benda mér á slík tilfelli ef einhver eru.“
Mistök að draga úr sundkennslu
Þá segist Davíð skilja að sumt fólk finni fyrir kvíða þegar kemur að sundnámi en telur að forðun sé ekki lausnin á þeim kvíða.
„Sumir hafa bent á að erfitt sé fyrir nemendur að þurfa að fara í sturtu og að þeir séu þar berskjaldaðir. Gott og vel, þetta er samt einn af örfáum stöðum þar sem hægt er að sjá allt rófið af líkamstýpum, öfugt við einsleitu glansmyndina sem samfélagsmiðlar mála upp, og börn hafa aðgang að nánast öllum stundum sólarhringsins.
Ég tel að það hafi verið stigið feilspor þegar dregið var úr sundkennslu barna. Það eitt að kunna að synda getur skilið á milli lífs og dauða. Það eru fáir hlutir í skólakerfinu sem geta haft eins afdrifarík áhrif. Að lokum vil ég árétta að sundkennsla er ekki bara SUND. Við sem íþróttakennarar erum ekki bara að kenna rétt fótatök í bringu- eða skriðsundi. Við erum að skapa jákvæða upplifun að hreyfingu til frambúðar,“ skrifar Davíð að lokum.