Þórdís Elva Þorvaldsdóttir baráttukona og rithöfundur boðar á morgun til mótmæla gegn niðurfellingu nauðgunarmála og til að vekja athygli á ofbeldi gagnvart konum.
Í viðamikilli könnun á ofbeldi karla gegn konum sem félags- og tryggingamálaráðuneytið fól Rannsóknarsetri í barna- og fjölskylduvernd við Háskóla Íslands að gera árið 2009 kom fram að um 42 prósent kvenna á Íslandi hafa sætt ofbeldi einhvern tíma á ævinni frá 16 ára aldri.
Ásamt Þórdísi Elvu standa Brynhildur Björnsdóttir og María Lilja Þrastardóttir blaðamenn að mótmælunum, sem fara fram að Skúlagötu 17 fyrir utan skrifstofu héraðssaksóknara. Safnast er saman kl. 17 og hefst samstaðan kl. 17.15. Mótmælin munu standa yfir í 20-30 mínútur. Þátttakendur þurfa ekki að hafa neitt meðferðis, það er nóg að mæta og taka sér stöðu með þeim hugrökku þolendum sem kærðu nauðgun til lögreglu en fengu aldrei tækifæri til að leita réttar síns fyrir dómi, segir í viðburði vegna mótmælanna.
„Það er kominn tími til að horfast í augu við að konur eru beittar ofbeldi í svo miklum mæli…”
Eins og komið hefur fram í fréttum fékk lögreglan tilkynningu rétt fyrir níu í gærkvöldi um að konu á þrítugsaldri hefði verið hrint fram af svölum niður á steyptar tröppur í Hólahverfi í Breiðholti. Karlmaður á fertugsaldri var handtekinn á vettvangi og vistaður í fangageymslu.
Í færslu sem Þórdís Elva skrifar á Facebook-síðu sína í morgun biður hún fyrir bata konunnar og segir að löngu sé kominn tími til að horfast í augu við það ofbeldi sem konur eru beittar.
„Það er kominn tími til að horfast í augu við að konur eru beittar ofbeldi í svo miklum mæli að það er ótrúlegt að þær skuli ekki vera löngu búnar að grípa til örþrifaráða, stofna til óeirða og lama samfélagið svo það VAKNI TIL FOKKING VITUNDAR.“
Bendir Þórdís Elva á að næstum önnur hver kona sé beitt ofbeldi einhvern tíma á lífsleiðinni eins og fyrrgreind rannsókn sýnir. „Önnur hver frænka þín, önnur hver skólasystir, önnur hver vinkona, önnur hver samstarfskona. Hlutfallið er jafnvel hærra meðal kvenna sem glíma við fíkn eða eru af erlendum uppruna, til að mynda. Ein versta birtingarmynd ofbeldis gegn konum, nauðgun, er nánast refsilaus,“ skrifar Þórdís Elva.
„Ég vildi að ég hefði getað gripið systur okkar sem var hrint af svölunum í gær. Ég gat það ekki, en ég get hafið upp raust mína hér. Og þau ykkar sem eruð í Reykjavík getið mótmælt á morgun fyrir hönd þeirra hugrökku þolenda sem kærðu nauðgun, en fengu aldrei að fara fyrir dóm. Hættum að TALA og förum að GERA. Við höfum ekki efni á að líta undan, lengur. Fórnarkostnaðurinn er allt of hár.“