- Auglýsing -
Alex Salmond, sem eitt sinn var forsætisráðherra skosku heimastjórnarinnar sem og fyrrverandi leiðtogi Skoska þjóðarflokksins, er látinn, 69 ára að aldri.
Það var BBC sem greindi frá því að Salmond hafi veikst á ferðalagi sínu um Norður-Makedóníu.
Hann var forsætisráðherra Skotlands frá árinu 2007 til ársins 2014. Salmond var leiðtogi Skoska þjóðarflokksins frá árinu 1990 til ársins 2000, síðan aftur frá árinu 2004 til ársins 2014.