Lögreglustöð 1.
Tilkynnt um fólk sem hafði komið sér fyrir í kjallara sameignar í hverfi 104. Lögregla sinnti.
Þrír ökumenn sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Tilkynnt um líkamsárás á skemmtistað í miðborginni. Lögregla sinnti og málið í rannsókn.
Tilkynnt um yfirstaðið innbrot á veitingastað í hverfi 108. Lögregla sinnti og málið í rannsókn.
Leigubílstjóri óskaði eftir aðstoð lögreglu vegna farþega sem var farinn að hóta honum og neitaði að greiða fyrir þjónustuna. Aðilinn handtekinn og færður á lögreglustöð. Laus að lokinni skýrslutöku.
Tilkynnt um slys á skemmtistað í miðborginni. Lögregla sinnti og reyndist slysið vera minniháttar.
Lögreglustöð 2.
Tilkynnt um mögulega ölvaðan ökumann sem hafði ekið bifreið sinni á skilti í hverfi 220. Lögregla sinnti og var ökumaðurinn handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum áfengis. Ökumaður vistaður í fangaklefa í þágu rannsóknar máls.
Tilkynnt um ofurölvi mann ráfandi fyrir utan skemmtistað í hverfi 220. Lögregla sinnti og var manninum komið heim til sín.
Tilkynnt um öldauðan mann við skemmtistað í hverfi 220. Lögregla sinnti.
Lögreglustöð 3.
Tilkynnt um mann að áreita fólk við verslun í hverfi 109. Lögregla ræddi við manninn sem að lokum gekk sína leið.
Tilkynnt um háværa hvelli í hverfi 111. Lögregla sinnti og líklega um flugelda að ræða.
Ökumaður stöðvaður í akstri í hverfi 200. Ökumaðurinn reyndist vera í annarlegu ástandi og var hann handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum áfengis, ávana- og fíkniefna. Ökumaðurinn streittist verulega á móti við handtöku og var hann vistaður í fangaklefa.
Tilkynnt um ölvaðan mann að reyna að aka í burtu á bifreið sinni. Tilkynnandi kvaðst standa fyrir bifreiðinni til að koma í veg fyrir það. Lögregla sinnti og var maðurinn færður á lögreglustöð og að lokum vistaður í fangaklefa.
Lögreglustöð 4.
Tilkynnt um mikinn reyk koma frá húsi í hverfi 113. Lögregla sinnti ásamt slökkviliði og hafði húsráðanda tekist að slökkva eldinn. Slökkvilið sá um að reykræsta húsið í kjölfarið.
Tilkynnt um hóp manna í átökum í hverfi 113. Lögregla sinnti og reyndist málið vera minniháttar. Allir aðilar gengu sína leið eftir samtal við lögreglu.
Lögregla sinnti aðstoðarbeiðni vegna veikinda í hverfi 112.
Lögregla sinnti hávaðakvörtun í hverfi 270.