Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, hefur nú upplýst í blaðaviðtali að henni hugnist að bjóða sig fram í suðvesturkjördæmi. Þetta er í samræmi við það sem upplýst hefur verið í Mannlífi. Þórdís Kolbrún er án baklands í sínu kjördæmi þar sem áhrifafólk vill ekki sjá hana. Ástæðuna má rekja til furðulegrar ákvörðunar hennar um að Ísland, eitt þjóða, lokaði sendiráði sínu í Moskvu. Gjaldþrot stórfyrirtækisins 3X á Akranesi er að hluta skrifað á Þórdísi og Skagamenn eru ævareiðir.
Þessi hugmynd mun sennilega ekki vekja neina lukku í kraganum þar sem Bryndís Haraldsdóttir þingmaður er fyrir á fleti í þriðja sæti og gefur ekkert eftir átakalaust. Þingmennirnir uppreisnargjörnu, Óli Björn Kárason og Jón Gunnarsson, eru ekki heldur líklegir til að sætta sig við innrás varaformannsins. Líklegt er að þeir falli báðir af þingi þegar og ef varaformaðurinn sest við hlið Bjarna Benediktssonar formanns í efsta sætið.
Miðað við stöðu flokksins í könnunum er viðbúið að mikið mannfall verði í kjördæmi formannsins. Sáttaleiðin kann að verða sú að Bjarni hætti einfaldlega í framhaldi þess hvernig hann skakklappast í gegnum þingrofsmálið og hefur fengið alla flokka upp á móti sér. Þórdís Kolbrún yrði þá formaður og oddviti listans …