- Auglýsing -
Jódís Skúladóttir veður í fyrrum samherja sinn, Bjarna Benediktsson og Sigmund Davíð Gunnlaugsson í nýlegri Facebook-færslu.
Þingkona Vinstri grænna, Jódís Skúladóttir er búin að taka boxhanskana af og skýtur bylmingsfast á Bjarna Benediktsson og Sigmund Davíð Gunnlaugsson sem hún kallar „Panamaprinsa“. Spyr hún lesendur hvort þeir séu ekki tilbúnir í aðra umferð af „öfga-hægri wintris stjórn“ og birtir ljósmynd af þeim félögum.
Hér má lesa færsluna í heild sinni:
„Endurnýtum og spörum!
Eru ekki örugglega öll reddy í annað round af Panamaprinsum og öfga-hægri wintris stjórn? Með brakandi ferskri útlendingaandúð, sveltum ríkisrekstri og frelsi auðvaldsins til að græða og grilla á kostnað almennings? Og það án allrar vinstri skaðaminnkunar…
The weels on the bus go round and round.
Ég hef aldrei verið eins stolt af því að tilheyra VG! Náttúruvernd, kvenfrelsi, félagslegt réttlæti og friðarstefna.“