Alls eru 53 mál skráð í kerfi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu frá klukkan 05:00 í morgun.
Lögreglan sem þjónustar Austurbæinn, Vesturbæinn, miðborgina og Seltjarnarnes keyrði konu heim í morgun sökum ölvunarástands. Einnig barst henni tilkynning um innbrot í fyrirtæki. Þá var sótölvaður einstaklingur fjarlægður af hóteli vegna ölvunar. Enn einn var síðan handtekinn og vistaður í fangageymslu sökum eignarspjalla og ofbeldis gagnvart opinberum starfsmönnum.
Lögreglumenn sömu lögreglustöðvar handtók einnig mann vegna vörslu fíkniefna en samkvæmt dagbók lögreglunnar var maðurinn vægast sagt í annarlegu ástandi og var hvorki meðvitaður um stað né stund.
Tilkynning barst sömu lögreglustöð um æstan mann sem sparkaði í bíla. Fannst hann og af honum tekin stutt skýrsla.
Lögreglustöðin sem þjónustar Hafnarfjörð og Garðabæ fékk tilkynningu um hávaða í heimahúsi en lögreglumenn ræddu við húsráðanda. Þá barst þeim aukreitis tilkynning um innbrot í geymslu fjölbýlis.
Lögreglan sem starfar í Kópavogi og Breiðholti athugaði með mann sem var það ölvaður að hann átti erfitt með gang.
Að lokum segir frá því í dagbók lögreglunnar að lögreglustöðin sem þjónar Grafarvogi, Árbæ og Mosfellsbæ hafi borist tilkynning um innbrot í fyrirtæki þar sem einhverju var stolið. Málið er nú í rannsókn. Tilkynning barst einnig um rudda sem óð inn í sameign fjölbýlis en var þar óvelkominn og vísað út. Þá barst sömu lögreglu tilkynning um mann sem gekk um með sleggju. Ekki fannst hann þrátt fyrir leit.