Kennarastéttin er í miklum vanda ef marka má nýja úttekt Viðskiptaráðs. Þar segir að íslenska grunnskólakerfið sé dýrt í alþjóðlegum samanburði. Þá er kennsluskylda lítil og fjöldi nemenda á hvern kennara er einn sá lægsti þekkist. Veikindahlutfall kennara er sagt vera almennt mun hærra en hjá einkageiranum og hinu opinbera.
Óljóst er hvaða vísindi standa að baki úttekt Viðskiparráðs sem Morgunblaðið endurómar í dag. Boðskapurinn er aftur á móti sá að Einar Þorsteinsson borgarstjóri hafi haft rétt fyrir sér þegar hann sagði á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga að kennarastéttin glímdi við meiri veikindi en aðrar stéttir og hefðu fá nemendur á sínum snærum. Einar sagði að „kennarar kenndu mun minna og væru veikari en áður“.
Viðskiptaráð birtir niðurstöður sína á heimasíðu ráðsins. Þar eru eftirfarandi niðurstöður reifaðar:
Fjölgun kennara: Bæði kennurum og öðru starfsfólki grunnskóla hefur fjölgað hraðar en nemendum. Aukningin nemur 46% hjá kennurum og 70% hjá öllu starfsfólki á meðan nemendum hefur fjölgað um 12%.
Kennsluskylda: Hvergi á Norðurlöndum verja grunnskólakennarar jafn litlum tíma með nemendum og á Íslandi. Kennsluskylda er 19% undir meðaltali OECD.
Veikindi: Veikindahlutfall í grunnskólum Reykjavíkurborgar er ríflega tvöfalt hærra en á almennum vinnumarkaði, eða 7,4% samanborið við 3,1%.
Fjöldi kennara: Hvergi á Norðurlöndum eru jafn fáir nemendur á hvern grunnskólakennara. Fjöldinn er 9,9 hérlendis samanborið við 14 í OECD.
Kostnaður: Íslenskt grunnskólakerfi er það þriðja dýrasta innan OECD. Kostnaður á hvern grunnskólanema er 41% yfir meðaltali OECD, leiðrétt fyrir kaupmætti.
Kennarar, sem hafa boðað til verkfalla, brugðust ókvæða við orðum borgarstjórans og fjölmenntu í Ráðhúsið til að mótmæla. Þetta varð til þess að borgarstjórinn baðst afsökunar á einkunn sinni um framlag og veikindi kennara. Viðskiptaráð fullyrðir nú að borgarstjórinn hafi rétt fyrir sér og kennarar vinni lítið í alþjóðlegum samanburði og séu gjarnan veikir.
Björn Brynjúlfur Björnsson framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, segir í Morgunblaðinu að tölurnar styðji við ummæli sem Einar Þorsteinsson borgarstjóri lét falla.