Sú ákvörðun Ragnar Þórs Ingólfssonar, formanns VR, að gefa kost á sér í framboð fyrir Flokk fólksins kann að verða söguleg. Einn af forverum Ragnars Þórs, Guðmundur H. Garðarsson var um áratugaskeið alþingismaður og jafnframt formaður VR og þess utan sat hann í bankaráðum. Ragnar Þór gæti verið að feta sömu slóð. Viðbúið er að hann eigi í vændum öruggt þingsæti hjá FF og geti þannig tvöfaldað laun sín.
Stefán E. Stefánsson, blaðamaður og spyrill Moggans, var á sínum tíma formaður VR. Hann átti sér þann draum að komast í sömu stöðu og Guðmundur en var hent út úr formannssætinu vegna slælegrar frammistöðu. Nú stefnir í að Ragnar Þór feti í fótspor hans og nái að láta draum Stefáns rætast í eigin þágu. Verkalýðsleiðtoginn knái gæti þá náð að tryggja sér kjarabætur sem færðu honum hátt í þrjár milljónir í mánaðarlaun …