Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn og yfirmaður miðlægrar rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu er að íhuga framboð fyrir Viðreisn.
Grímur staðfestir við RÚV að hann sé að íhuga að bjóða sig fram fyrir Viðreisn í öðru hvoru Reykjavíkurkjördæminu í komandi Alþingiskosningum. Segist hann hafa sagt yfirmönnum sínum frá málinu en að ákvörðun um framboð verði líklegast tekin í dag. Viðreisn í Reykjavík ætli að leggja fram tillögu að framboðslista í kjördæmunum næsta fimmtudag. Segir Grímur uppstillingarnefnd að ákveða hvar hann verði á lista.