Jón Gnarr tekur upp hanskann fyrir kennara og kemur með áhugaverðan punkt varðandi aukin veikindi í stéttinni.
Grínistinn og frambjóðandi Viðreisnar í komandi Alþingiskosningum, Jón Gnarr, skrifaði Facebook-færslu í gær en með færslunni birtir hann skjáskot af frétt mbl.is sem fjallaði um úttekt Viðskiptaráðs á skólamálum. Þar kemst Viðskiptaráð meðal annars að þeirri niðurstöðu a veikindahlutfall kennara vera almennt mun hærra en hjá einkageiranum og hinu opinbera. Jón spyr í færslunni hvort mygla geti verið ástæðan fyrir veikindunum en ekki „leti og aumingjaskapur kennar“:
„En hvað með myglu ? Erum við ekki smá að gleyma myglufaraldrinum ? Ég kannaði til gamans hvað orðið mygla kemur oft fyrir í úttekt Viðskiptaráðs og svarið er: Aldrei. Gætu veikindi vegna myglu skýrt þetta ? Og þá ástæðan fyrir lélegum samanburði ekki leti og aumingjaskapur kennara heldur frekar heilsuspillandi húsnæði ?“