Alþingiskosningar eru á næsta leiti og ekki ólíklegt að þjóðin fái nýjan forsætisráðherra en alls hafa ellefu flokkar gefið út að þeir muni bjóða fram lista sína og keppast um atkvæði almennings. Venjan er sú að formenn einhvers stjórnmálaflokksins taki við forsætisráðherra embættinu og spurði Mannlíf lesendur sína um besta kostinn í gær
Rétt er þó að taka fram að Píratar og Sósíalistaflokkur Íslands hafa ekki hefðbundna formenn og var því Þórhildur Sunna valin í þessa könnun þar sem hún er formaður þingflokks Pírata og Sanna Magdalena var valin fyrir Sósíalistaflokkinn þar sem hún er þekktasta manneskjan sem öruggt er að bjóði sig fram fyrir þeirra hönd.
Niðurstaðn er nokkuð áhugaverð en flestir vilja sjá Sigurð Inga, formann Framsóknarflokksins, sem næsta forsætisráðherra Íslands