Nóttin var að mestu án átaka hjá lögreglunni og smærri afbrot einkennandi. Búðarþjófar voru áberandi.
Þrír ökumenn voru stöðvaðir við akstur þar sem þeir voru að tala í farsíma án þess að nota handfrjálsan búnað. Símtölin voru fremur dýrkeypt þar sem þeir þurfa að greiða sekt sem nemur í hverju tilviki 40 þúsund krónum.
Búðarþjófar náðust í tveimur verslunum í miðborginni. Skúrkarnir viðurkenndu sök og voru mál þeirra afgreidd á vettvangi. Þriðji búðarþjófurinn var ekki samvinnuþýður. Þar var um að ræða konu sem var handtekin og flutt á lögreglustöðina á Hverfisgötu. Tekin var af henni skýrsla og henni síðan sleppt út í síðdegið.
Ökumaður stöðvaður í akstri í Hafnarfirði. Reyndist hann vera réttindalaus. Mál hans var afgreitt með sekt
Tilkynnt um tónlistarhávaða í heimahúsi Breiðhiolti. Hávaðaseggurinn lofaði að lækka. Á svipuðum slóðum átti sér stað þjófnaður úr bifreið. Mál hans var þjófsins var afgreitt á vettvangi.