Eldur kom upp í ruslatunnu í miðborginni. Tekist hafði að slökkva eldinn með slökkvitæki þegar neyðaraðila bar að garði.
Rúður voru brotnar í grunnskóla í Vesturbænum. Ekki er upplýst um gerendur.
Tilkynnt var um grunnsamlegar mannaferðir í austurborginni. Ekkert bar sjá þegar lögreglu bar að og hinir dularfullu horfnir sporlaust.
Nokkuð var um að ökutækjum væri lagt ólöglega á eða við gangbrautir í Garðabæ. Eigendur þeirra ökutækja mega eiga von á sekt vegna stöðubrota.
Tilkynnt um slagsmál við veitingastað í Breiðholti. Öðrum slagsmálahundanna var ekið á slysadeild til aðhlynningar.
Tilkynnt var um grunnsamlegar mannaferðir á tveimur stöðum í Kópavogi í nótt. Ekkert var sjá þegar lögreglu bar að garði.