Tónlistarmaðurinn og borgarfulltrúinn fyrrverandi Eyþór Arnalds setti fram áhugaverðar pælingar um stöðu fjölmiðla í heiminum á Twitter í gær. Þar hvatti hann fjölmiðla og starfsfólks þess til líta í spegilinn og velta því fyrir sér af hverju hefðbundnir fjölmiðlar séu á undanhaldi. Fólk í dag vilji nefnilega upplýsingar og fréttir ekki áróður og predikanir. Hlusta þurfi á þarfir lesandans og hlustandans.
Það hafi hinn mikli Jeff Bezos gert með Amazon en hann á einnig dagblaðið The Washington Post.
Orð Eyþórs eru auðvitað sérstaklega áhugaverð í ljósi þess að hann á rúmlega tíu prósenta hlut í Morgunblaðinu, sennilega hefðbundnasta fjölmiðli Íslands og þó víðar væri leitað. Ekki liggur fyrir hvort Eyþór sé að hvetja starfsfólk sitt til að fara í naflaskoðun eða hann hafi hreinlega gleymt því að hann sé í eigendahópi Moggans …