Fimmtudagur 31. október, 2024
2.7 C
Reykjavik

Pabbi Dags reiður

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs og frambjóðandi Samfylkingar, hefur uppskorið bæði aðhlátur og grát eftir að Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingar, tók af skarið um að hann væri ekki ráðherraefni flokksins og fólki væri velkomið að stroka hann út.

Ættmenni Dags hafa snúist honum til varnar. Fyrst var það bróðir hans, Gauti Eggertsson, sem skildi minnst í því að stór hluti Samfylkingar vildi ekki Dag í framboð. Í gær steig síðan faðir hans, Eggert Gunnarsson dýralæknir fram og hæddist að Kristrúnu formanni og öðrum oddvitum flokksins.

„Kristrún hef­ur látið að því liggja að komi til þess að Sam­fylk­ing­in myndi rík­is­stjórn verði Dag­ur B. Eggerts­son ekki ráðherra­efni enda sé hann hann feta sig á nýj­um slóðum. Fyr­ir í fleti séu leiðtog­ar flokks­ins í hinum ýmsu kjör­dæm­um. Og hverj­ir eru svo þess­ir snill­ing­ar,“ spyr Eggert í færslu á Facebook og reiði hans leynir sér ekki.

Hann telur svo upp ráðherraefni Samfylkingar, væntanlega til að sýna fram á hve heimskulegt það sé að hafna syninum hugumprúða.

„Fyr­ir utan hana sjálfa eru það: Jó­hann Páll Jó­hanns­son, alþing­ismaður til þriggja ára; Arna Lára Jóns­dótt­ir, bæj­ar­stjóri Ísa­fjarðarbæj­ar og rit­ari Sam­fylk­ing­ar­inn­ar; Logi Ein­ars­son, alþing­ismaður og frv. formaður; Víðir Reyn­is­son, yf­ir­lög­regluþjónn; Alma Möller, land­lækn­ir …,“ skrifar Eggert og tíundar svo kosti sonarins og yfirburðareynslu. Mogginn hefur síðan endurómað færslu Eggerts og veitt Degi stuðning á erfiðum tímum. Spurt er um einlægni. Flestur hafa fagnað frumkvæði Kristrúnar og þeim fastatökum í að endurnýja flokkinn sem aðgerð hennar lýsir.

Dagur hefur sjálfur tekið höfnunni vel opinberlega. Hann sagði á RÚV að hann hefði sjálfur óskað eftir öðru sæti á listanum og þar með minni ábyrgð. Fullyrt er innan Samfylkingar að hann hafi upphaflega sóst eftir því að verða oddviti í öðru Reykjavíkurkjördæmanna en því hafi verið hafnað af Kristrúnu og uppstillinganefnd. Það er því í besta falli hálfsannleikur að hann hafi sjálfur óskað eftir aukahlutverki …

- Auglýsing -

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -