Búðarþjófar voru staðnir að verki við iðju sína í verslun í miðborg Reykjavíkur. Þegar starfsmaður vildi ræða afbrot þeirra brugðust þjófarnir illa við og vildu ekki viðurkenna sök sína. Einn þeirra dró upp hníf og ógnaði starfsmanninum. Þjófarnir forðuðu sér síðan á hröðum flótta. Málið er í rannsókn og telur lögregla sig hafa upplýsingar um hverjir gerendurnir eru.
Tilkynnt var um líkamsárás á svæði Hafnarfjarðarlögreglu. Ofbeldismaðurinn hafði hlaupið af vettvangi strax eftir brotið. Málið er nú í rannsókn hjá lögreglu.
Lögregla í Kópðavogi var kölluð til vegna þjófnaðar í verslun. Vettvangsskýrsla rituð um málið.
Á svæði Mosfellsbæjarlögreglu var helst til síðinda að ökumaður var stöðvaður í akstri grunaður um að hafa ekki réttindi.
Númeraplötur voru klipptar af 10 ökutækjum, ýmist vegna skorts á tryggingum eða að skoðun hafði ekki farið fram.