- Auglýsing -
Maður á fertugsaldri sem féll út í Tungufljót nálægt Geysi í gær er látinn en lögreglan á Suðurlandi greinir frá þessu í færslu á samfélagsmiðlum.
Björgunarsveitarmenn náðu honum upp úr ánni og hófu um leið endurlífgunartilraunir en þær báru ekki árgangur. Lögreglan segir í færslunni að aðstæður á vettvangi hafi verið krefjandi vegna rigningar og þá hafi vatnsmagn í ánni verið mikið.
Tildrög slyssins eru til rannsóknar hjá lögreglunni á Suðurlandi.