Komandi Alþingiskosningar eru sennilega með þeim mest spennandi á öldinni en líklegt er að komandi ríkisstjórn verði gjörbreytt frá þeirri sem hefur verið starfandi síðan árið 2017. Sumt fólk bíður alveg þar til það er komið í kjörklefann með að ákveða sig meðan aðrir kjósa ávallt sama flokkinn.
Því spurði Mannlíf lesendur sína: Veist þú hvaða flokk þú munt kjósa 30. nóvember?
Tæp 19% þeirra sem svöruðu þessari könnun hafa ekki ennþá gert upp hug sinn og því til mikils að vinna fyrir stjórnmálaflokkanna þegar kemur að lesendum Mannlífs.