- Auglýsing -
Í gær, sunnudag, voru sjúkraflutningamenn frá Heilbrigðisstofnun Suðurlands og björgunarsveitir kallaðar út vegna erlends ferðamanns sem hafði fallið við göngu nærri Gígjökli á Þórsmerkursvæðinu.
Ferðamaðurinn var að virða fyrir sér náttúruna, en féll þegar jarðveg tók að skríða undan fótum hans með þeim afleiðingum að hann hlaut áverka á fæti.
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út og var maðurinn fluttur á Landspítala háskólasjúkrahús til aðhlynningar. Hann er ekki talinn í lífhættu.
Lögreglan á Suðurlandi beinir því til fólks að halda sig við merktar gönguleiðir og sýna sérstaka aðgát þegar farið er um svæði sem fólk þekkir ekki.