Sjálfstæðisflokkurinn á undir högg að sækja í baráttunni um hylli kjósenda. Flokkurinn náði enn einum botninum í nýjustu könnun Prósents þegar hann reyndist vera með aðeins rúmlega 13 prósenta fylgi og þar með fjórði stærsti flokkur landsins. Viðsreisn og Samfylking fara með himinskautum í fylgi og vantar ekki mikið upp á að Kristrún Frostadóttir og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir nái meirihluta og fái þannig dauðafæri til að stíga fyrstu skrefin í að ganga í Evrópusambandið og losna undan yfirvofandi þrengingum vegna Donalds Trump.
Það er til marks um örvæntingu Bjarna Benediktssonar að flokkur hans splæsir í heilsíðu í Bændablaðinu þar sem segir í hástöfum: Höldum áfram að lækka vexti. Einhverjir velta fyrir sér hver beri stærsta ábyrgð á vaxtaokrinu og þeim himinhæðum sem vextir náðu með miklum erfiðleikum fyrir skuldara. Þar kemur nafn Bjarna fjármálaráðherra upp úr hattinum …