Tónlistarmaðurinn Auðunn Lúthersson birtist óvænt á streymi Twitch notendans Kai Cenat í gærkvöldi. Kai Cenat hefur á undanförnum árum orðið einn stærsti áhrifavaldur heims og slegið hvert metið á fætur öðru bæði í fjölda áhorfenda og áskrifenda.
Auðunn var á skjánum með Kai í rúma 4 klukkutíma og spilaði þar á rafmagnsgítar ásamt því að spjalla við Kai. Þegar hæst stóð voru yfir 70.000 áhorfendur á streyminu.
Kai Cenat hefur streymt á Twitch allan nóvembermánuð og hyggst vera í beinni út allan mánuðinn. Nýlega hefur Kai fengið til sín gesti á borð við Snoop Dogg, Travis Scott, John Cena og Kevin Hart.
Auðunn hefur undanfarin tvo ár búið í Los Angeles og starfar þar sem tónlistarmaður og hljóðupptökustjóri.
View this post on Instagram