Þriðjudagur 19. nóvember, 2024
-4.5 C
Reykjavik

Össur rífur Sjálfstæðisflokkinn í sig: „Þegar menn standa í skít upp að hálsi …“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -
Össur Skarphéðinsson rífur Sjálfstæðisflokkinn í sig í nýrri Facebook-færslu þar sem hann tekur fyrir hlerunarmál Jóns Gunnarssonar.

Líffræðingurinn og fyrrum ráðherra Samfylkingarinnar, Össur Skarphéðinsson skrifaði í dag harðorða Facebook-færslu þar sem hann talar um „súrrealisma í boði Sjálfstæðisflokksins“:

„Súrrealismi í boði Sjálfstæðisflokksins

Súrrealískt er að sjá að þegar ísraelskir leyniþjónustumenn fletta ofanaf hrossakaupum og spillingu innan Sjálfstæðisflokksins þá bregst sá sem flett er ofan af við með aumkunarverðri tilraun til að kenna nafngreindum frambjóðendum Samfylkingarinnar um uppljóstrunina. – Tilefnið? Jú, frambjóðendurnir unnu einhvern tíma með fréttamönnum Heimildarinnar. Þeir ágætu fréttamenn hafa reyndar ekkert til saka unnið í þessu ótrúlega máli annað en birta efni sem þeim var sent og virðist svo sannarlega eiga erindi við þjóðina.“

Þannig hefst færsla Össurar en í næstu orðum talar hann fyrir því að hlutverk forystu Sjálfstæðisflokksins verði rannsakað:

„Þegar menn standa í skít upp að hálsi bjargar það aldrei neinu að kasta skítnum í saklausa áhorfendur. Slíkur darraðardans ýtir mönnum yfirleitt lengra niður í kviksyndið. Þannig gefur samtalið sem Heimildin birti fulla ástæðu til að krefjast þess að hlutverk forystu Sjálfstæðisflokksins verði rannsakað í kjölinn. Þar er nefnilega fullyrt af innvígðum Sjálfstæðismanni að hún hafi vitandi vits ætlað Jóni Gunnarssyni að gefa út hvalveiðileyfi m.a. í þeim tilgangi til að ná til baka atkvæðum sem tapast höfðu vegna aumingjaskapar flokksins á fyrri stigum málsins. Semsagt, flokkshagsmunir fram yfir almannahagsmuni – enn einu sinni. Varla stöðvast þó frjálst fall flokksins í skoðanakönnunum við þessa tragísku uppákomu.“

Að lokum segir Össur að meint spilling Sjálfstæðisflokksins verði ofar á dagskrá en ella fyrir komandi kosningar:

„Líklega má þó þakka Jóni Gunnarssyni og óopinberri stassjón Mossads að frjáls fjölmiðlun, auðlindasukk og meint spilling Sjálfstæðisflokksins verða mun ofar á dagskrá kosninganna en ætla mátti í upphafi.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -