Föstudagur 15. nóvember, 2024
0.3 C
Reykjavik

Kim Kardashian segir erfitt að vera einstæð móðir

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian opnaði sig nýverið í hlaðvarpsþættinum What in the Winkler?! um hversu erfitt er að vera einstæð móðir.

Í hlaðvarpinu segir hún að hún ali upp börnin sín fjögur upp svo gott sem ein og gaf í skyn að Kanye West, fyrrverandi eiginmaður hennar og barnsfaðir, komi lítið nálægt uppeldi barnanna. Hún sagði að vera ein með börnin fjögur taki á og hún tali sjaldan um erfiðleikana þar sem hún óttist að fólk dæmi hana.

Hún hélt áfram og sagði að allir litlu hlutirnir safnist upp og það hafi áhrif á geðheilsuna. Henni finnst á köflum eins og hún megi ekki kvarta þar sem hún getur fengið mikla aðstoð ef hún óskar eftir henni. Hún segir samt að hún þó hún fái mikla aðstoð þá sé hún í raun ein með börnin og það sé erfitt fyrir hana.

Börnin fjögur eru 11, 8, 6 og 5 ára gömul en Kanye West er faðir þeirra allra. Þau skildu í nóvember árið 2022 og síðan þá hefur West verið á ferðalagi með Bianca Censori, nýrri eiginkonu sinni, um allan heim.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -