Laugardagur 16. nóvember, 2024
-1.2 C
Reykjavik

Segir hræsnina í íslenskum stjórnmálum yfirgengilega: „Hún er víða“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -
Hræsni er Birni Birgissyni hugleikin í nýrri Facebook-færslu.

Samfélagsrýnirinn málsnjalli, Björn Birgisson spyr í nýjustu færslu sinni, hvað megi og hvað megi ekki og hver sé dómarinn og á þá við í pólitíkinni. Nefnir hann nokkur dæmi úr raunveruleikanum:

„Yfirgengileg hræsni í pólitíkinni.

Hvað má og hvað má ekki og hver á að gerast dómarinn?
**********
Mega stjórnmálamenn fela peninga í skattaskjólum í útlöndum?
Mega stjórnmálamenn skipa reynslulausa vini og vinkonur í góðar stöður í kerfinu, til dæmis sendiherrastöður?
Er eðlilegt að dýralæknir sé skipaður vegamálastjóri vegna gamalla kynna?
Mega þingmenn sem verða sér til háborinnar skammar, blindfullir á vinnutíma, halda þingmennsku áfram?
Mega þingmenn sem hafa í ölæði nýtt niður bæði fatlaðar og ófatlaðar konur og farið um þær verulega ófögrum orðum sitja á þingi?
Mega þingmenn sitja eins og ekkert hafi í skorist þrátt fyrir að vera með gjaldþrota hala upp á 130 milljarða?
Mega þingmenn, sem augljóslega gerðust innherjasvikarar þegar spilaborg bankanna hrundi haustið 2008, sitja á sama þingi og setti lög um innherjasvik á sínum tíma?

Hvernig er mannorð margra þingmanna, skoðað með smásjá og með aðstoð fólks sem almennt er talið vera siðlaust sjálft?“

Að lokum segir Björn að hræsnin sé víða:

„Hvernig var mannorð sumra þingmanna sem vildu kæra Geir Haarde fyrir landráð, en vildu sleppa flokkssystkinum sínum við þau örlög?
Hræsnin.
Hún er víða.
Dæmin eru svo miklu fleiri.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -