Björg Magnúsdóttir er annar umsjónarmaður skemmtiþáttarins Kappsmál sem hefur göngu sína á föstudaginn. Hún segir að glens og góð stemmning verði í aðalhlutverki í þáttunum.
Kappsmál er nýr, íslenskur skemmtiþáttur sem hefur göngu sína á föstudaginn klukkan 19:45 á RÚV. Umsjónarmenn þáttanna eru þau Björg Magnúsdóttir og Bragi Valdimar Skúlason.
Í þáttunum fá Björg og Bragi til sín góða gesti sem eiga það sameiginlegt að hafa gaman af íslenskri tungu. Keppendur í fyrsta þætti eru Svanhildur Hólm, Arnmundur Ernst Backman Björnsson, Bergur Ebbi Benediktsson og Rakel Garðarsdóttir.
„Þátttakendur etja kappi í fjölbreyttum orðaleikjum og þrautum, meðal annars í taugatrekkjandi stöfunarkeppni og í sérhannaðri útgáfu af hengimanni,“ segir í tilkynningu um þáttinn.
„Kappsmál er fyrir alla landsmenn og alls ekki bara fyrir fólk sem er með doktorspróf í málfræði. Ég meina, hver hefur ekki gaman af því að sjá landsþekkta keppendur stafa flókin orð undir tímapressu fyrir framan sjónvarpsmyndavélar,“ segir Björg þegar hún er spurð út í þættina.
„Ég er bæði mjög spennt en líka pínu stressuð…“
Björg lofar góðri skemmtun. „Glens, húmor og stemning eru í aðalhlutverki og svo held ég að það sé nokkuð öruggt að fólk muni læra eitthvað nýtt um okkar dásamlega tungumál í leiðinni.“
Björg viðurkennir að hún sé svolítið stressuð. „Ég er bæði mjög spennt en líka pínu stressuð fyrir viðtökunum og minni bara á að uppbyggileg gagnrýni toppar alltaf óhugsað drull á internetinu,“ segir hún hress.
Þættirnir verða á dagskrá RÚV öll föstudagskvöld í vetur.