Ný bók um Geirfinnsmálið, Leitin að Geirfinni, kemur út í dag þegar hálf öld er liðin frá hvarfi Keflvíkingsins sem hvarf sporlaust eftir að hafa skroppið út í búð eftir tóbaki.
Sigurður Björgvin Sigurðsson, höfundur bókarinnar, Leitin að Geirfinni, segist vita hvað henti Geirfinn Einarsson að kvöldi 19. nóvember 1974. Hann segir að Geirfinnur hafi beðið bana í átökum framan við heimili sitt en það tengist ekki því sem lögreglan og saksóknari héldu fram og dæmt var eftir í Hæstarétti árið 1980 þegar réttarmorð var framið á Sævari Ciesielski og fleri ungmennum. Þau fengu uppreist æru árið 2018.
Í bókinni segir að öskur hafi borist frá heimili Geirfinns. Nágranni Geirfinns segist hafa orðið vitni að átökum við heimili Geirfinns að kvöldi 19. nóvember. Sá var þá á barnsaldri. Geirfinnur hafi legið eftir, annaðhvort látinn eða stórslasaður, en barnið flúði að sögn skelkað heim til sín.
Sigurður og þeir sem aðstoðu hann við gerð bókarinnar ætla að koma gögnum og vísbendingum sem þau hafa undir höndum til embættis ríkissaksóknara.
„… En þessar upplýsingar eiga heima hjá saksóknara. Yfirvöld geta notast við rannsóknarheimildir sem ég get ekki. Að mínu mati þarf að ljúka þessu máli og það ætti ekki að vera erfitt þótt vitaskuld megi fara varlega að fólki,“ sagði Sigurður í samtali við Morgunblaðið í dag.
Í bókinni er því haldið fram að málsatvik hafi verið með allt öðrum hætti en rannsóknin gekk út á. Geirfinnur hafi ekki átt stefnumót við neinn í Hafnarbúðinni heldur hafi einfaldlega keypt sér sígarettur. Hann hafi ekki fengið símtal eftir að hann kom heim og hafi ekki gengið heim heldur fengið far.
Í bókinni er bent á að lögreglan hafi aldrei rætt við nágranna Geirfinns en bókarhöfundur hefur heimildir fyrir því að nágrannar hafi heyrt öskur koma frá heimili Geirfinns um kvöldið. Svipaða frásögn er að finna í skýrslum lögreglu.
Koma Geirfinns í Hafnarbúðina var talin lykilatriði hvað örlög hans varðar. Annar maður átti einnig að hafa komið þar og var sá talinn vera líklegur gerandi. Stytta var gerð eftir lýsingu sjónarvotta og nefnd Leirfinnur. Seinna kom á daginn að lýsingin passaði við Jón Grímsson, þáverandi starfsmann í Sigöldu, sem lýsti því í bókinni Ameríska draumnum þegar hann kom í Hafnarbúðina til að hringja. Hann hafði komið til Keflavíkur frá Reykjavík til að ná í bifreið og hringdi til að fá leiðbeiningar. Óumdeilt er að Jón, sem lést fyrir örfáum árum, hafði ekkert með hvarf Geirfinns að gera.